Hversu örugg er mini-pillan?
Mesta öryggi er 99,7%. Ef pillan gleymist þá minnkar öryggi hennar.
Hvað er mini-pilla?
Mini-Pillan er getnaðarvörn í formi pillu sem inniheldur aðeins eitt hormón sem er prógesterón. Hún hefur stundum verið kölluð brjóstapilla því hún hentar konum/leghöfum með börn á brjósti. Þessi pilla getur þó hentað mjög mörgum konum.
Hvernig á að nota mini-pilluna?
Mini-pillan er tekin inn daglega í 28 daga og síðan byrjað á næsta pilluspjaldi. Ekkert hlé er gert á pillutökunni.
Hvaða kostir eru við notkun mini-pillunnar?
Hún er mjög örugg getnaðarvörn ef hún er tekin inn á réttan hátt. Það er yfirleitt auðveldar að muna að taka pillu þegar hún er tekin inn daglega án nokkurs hlés. Hún inniheldur aðeins eitt hormón.
Eru einhverjir ókostir við notkun mini-pillunni?
Mini-pillan verndar ekki gegn kynsjúkdómum. Eftir að notkun pillunnar hefst verður yfirleitt tímabundin óregla á blæðingum síðan minnka blæðingar og geta þær hætt. Aðrar tímabundnar aukaverkanir geta t.d. verið höfuðverkur og brjóstaspenna.