Skip to content

Lekandi

Orsök

Bakterían Neisseria Gonorrhea veldur sýkingunni.

Smitleiðir

Smitast við snertingu slímhúða við kynmök, munnmök og endaþarmsmök ef smokkur eða töfrateppi er ekki notað. Getur borist í augu með fingrum.

Einkenni

Karlmenn fá oftast einkenni frá þvagrás: mikla útferð og sárt að pissa. Þeir geta haft verki í eistum. Konur/leghafar eru í 50% tilvika einkennalausar. Ef einkenni þá helst útferð, sárt að pissa, verkir við samfarir og/eða milliblæðingar.

 Fylgikvillar

Karlmenn: Krónísk sýking og bólgur í eistum og blöðruhálskirtli. Getur valdið ófrjósemi. Konur/leghafar: Bólgur í legi, eggjastokkum og eggjaleiðurum sem getur leitt til þess að eggjaleiðarar lokist og valdi ófrjósemi.

Greining

Karlmenn: Þvagprufa. Sam- og tvíkynhneigðir karlmenn: Þvagprufa, strok úr hálsi og/eða endaþarmi. Konur/leghafar: Strok frá leggöngum. Það getur tekið um 10 daga frá smiti að geta greint bakteríuna.

Meðferð

Sýklalyf. Ef par þá skilar hinn aðilinn líka sýni og báðir fá meðferð samtímis.



22. janúar 2023

Hafðu samband

Hafðu endilega samband ef þér finnst vanta umfjöllun um einhver mikilvæg málefni sem tengjast kynheilbrigði. Einnig ef þú vilt segja okkur frá þinni reynslu varðandi kynfræðslu og kynheilbrigðisþjónustu.