Þann 14. september kynntu tvær japanskar fræða- og fjölmiðlakonur sér starfsemi Samtaka um kynheilbrigði og ræddu við formann samtakanna.
Kimiko Aoki hefur starfað sem blaðamaður og sinnt rannsóknum á fjölmiðlum. Hún starfaði í 40 ár hjá japanska ríkisútvarpinu og hefur meðal annars rannsakað jafnrétti og kynjahalla í japönskum fjölmiðlum.
Rika Tanioka hefur starfað sem prófessor í kynja- og fjölmiðlafræðum og unnið bæði hjá einka- og ríkisreknum fjölmiðlum. Frá árinu 2022 hefur hún veitt forstöðu stofnun á sviði útvarps- og sjónvarpsfræða.

Kimiko Aoki til vinstri, Rika Tanioka til hægri.
