Þann 17. febrúar var haldinn fundur fimm manna danskrar sendinefndar (frá Sex og Samfund og danska þinginu), tíu íslenskra þingmanna ásamt fulltrúum frá Samtökum um kynheilbrigði. Danska sendinefndin gerði grein fyrir samstarfi sínu milli Sex og Samfund og danska þingsins. Hefur slíkt samstarf einnig verið á öðrum Norðurlöndum. Þá var einnig rætt um starf Samtakanna og greindi formaðurinn, Dr. Sóley S. Bender, frá brýnum málefnum hér á landi tengdum kynheilbrigði, eins og kynfræðslu í skólum og mikilvægi þess að styðja foreldra og styrkja kynheilbrigði ungra karlmanna. Síðan var rætt um mikilvægi þess að Samtök um kynheilbrigði og þingmenn hér á landi móti samstarf um mikilvæg kynheilbrigðismál á Íslandi.

